
Krákan - 6
Lára Björnsdóttir býr til allar Krákur sjálf, hún er menntuð sem húsgagnasmiður en hefur verið að hanna Krákuna síðustu sex árin.
Hugmyndin kom frá því að Lára var að fá skart og endurnýta frá fjölskyldu meðlimum, síðan þá hefur Krákan þróast í síð hálsmen sem eru klæðileg og passa við öll tilefni.
Engin kráka er eins og er hvert hálsmen sannarlega einstakt. Krákan er þekkt fyrir að henta öllum aldurshópum og er tilvalin sem gjöf fyrir ýmis tilefni.
Böndin eru sirka 45 cm að lengd