Lita augnhár og augabrúnir með ektalit

Lita augnhár og augabrúnir með ektalit

Gott að geta bjargað sér sjálfur með því að lita sig heima. Hér sýni ég það á einfaldan hátt.

Smelltu hér til að skoða myndbandið.

Mjög gott er að fara til snyrtifræðings í litun og plokkun reglulega, en þar sem liturinn á augnhárunum og augabrúnunum endist ekki lengur en ca. viku til tvær, þá er gott að geta gripið í það ráð að lita sig sjálfur heima. Það er ekkert mál og við getum allar gert sjálfar, milli þess sem við förum svo á snyrtistofu og látum dekra við okkur. Hægt er að kaupa lit í apótekum og stórmörkuðum en ég mæli eingöngu með Jimjams litunum og 6% festir sem er sterkara en fæst í verslunum. Þessir litir og festir hafa reynst best við heimalitun og endast þokkalega vel. Það er margt sem getur hafð áhrif á að liturinn endist stutt t.d ef þú stundar sund reglulega þá eyðist liturinn hraðar út af klórnum,  einnig ef þú ert mikið í sól.

Það sem þarf er lítið glas eða skál til að hræra litinn í.

Bursta til að bera litinn á augabrúnir.

Sápu og bómull til að þurrka af augabrúnum.

 Vörurnar sem ég nota : 

 

JimJams litur til í svörtu, brúnu og blásvörtu sem við notum oftast á augnhár. Verð 2.200 

Smelltu hér til að skoða JimJams litinn. 

 

 

NoName bursti ská eða eyeliner. Verð 2.500

Festir 6%. Verð 1.900 

Hægt að panta í netverslun okkar noname.is 

 

  |  

Fleiri færslur

6 Athugasemdir

Skildu eftir athugasemd

Allar athugasemdir á blogginu eru skoðaðar áður en þær eru birtar