Fræðsla um Shea Butter

Fræðsla um Shea Butter
Hvaðan kemur Shea Butter? Shea butter er í grunninn olían sem kemur úr fræi úr Shea Butter tréi sem finnst í Afríku. Þetta er náttúru efni og er notað í matargerð í sumum Afríku löndum. Shea Butter er mjög vinsælt í snyrtivöru heiminum og hægt að finna efnið í rakakremum, hárvörum, sápum, varalitum og fleiri vörum. Kostir Shea Butters eru óteljandi og er helsti kosturinn hversu rakagefandi efnið er. Shea Butter er þekkt fyrir að mýkja húðina og gefa raka. Það er vegna þess að Shea Butter inniheldur rakagefandi olíur. Það bætir náttúrulega vörn húðinnar fyrir utankomandi áhrifum einsog ryki og óhreinendum í loftinu.
Samkvæmt rannsóknum frá Journal of Oleao Science þá inniheldur er Shea Butter ákveðin efnasambönd sem eru bólgueyðandi. Það gerir það að verkum að efnið er fullkomið til að róa og næra húð í uppnámi, einsog mikinn þurrk, bólgur í húð og útbrot. Shea Butter er gott fyrir exemi og er frabært til að bera á húðina eftir sólbruna eða viðkvæmri húð eftir sól. Shea butter er einng þekkt fyrir að vera gott til að græða ör vegna þess að ríkt fitusýrumagn í innihaldsefninu hjálpar við að mýkja örvefi og getur flýtt fyrir heilsunarferlinu. Samkvæmt Journal of Agricultural Food and Chemistry þá inniheldur Shea Butter töluvert magn af andoxunarefnum, þar á meðal A og E vítamín. Andoxunarefni hafa verið leiðandi í húðvörum sem sporna gegn öldrun húðar og með því að bera Shea Butter á húðina þá fær hún öll þau næringarefni sem húðin þarf.
Hjá okkur í NN Studio erum með gott úrval af vörum sem innihalda Shea Butter. Fyrir andlitið erum við með 24 tíma rakakremið frá Lepo og einnig daily defence rakakremið. Daily defence er létt rakakrem með 30 SPF sólarvörn. Lepo eru hágæða ítalskar vörur og lífrænar.
NoName Cosmetics er með Hydrate rakakremið sem inniheldur einnig Mango extract. Kremið er framleitt í Kanada og notum við aðeins hágæða innihaldsefni í kremið. Hydrate kremið er fullkomið rakakrem til að nota á daginn og góður grunnur fyrir farðann til að liggja ofan á.
Fyrir líkamann þá erum við með tvær vörur frá Lepo. Bio Body Butter sem er dásamlegur. Inniheldur einnig möndluolíu, jojoba og shea butter, allt það besta í einni krukku. Nýja kremið frá Body Lift línunni í Lepo inniheldur einnig Shea Butter. Body Lift kremið er einnig með Hýalúrónsýra sem bindur rakann í húðinni og parast mjög vel með Shea Butterinu.
  |  

Fleiri færslur

0 Athugasemdir

Skildu eftir athugasemd

Allar athugasemdir á blogginu eru skoðaðar áður en þær eru birtar