Förðunarnámskeið NoName fyrir hópa (2-4 manneskjur)

Venjulega verðið
7.500 kr
Söluverð
7.500 kr
Venjulega verðið
Uppselt
Einingaverð
per 

Fjöldi: fyrir eina manneskju

Förðunarnámskeiðin vinsælu  í NoName hafa verið haldin í yfir 30 ár og alltaf jafn vinsæl fyrir konur á öllum aldri.  Þetta eru frábær námskeið fyrir þær sem vilja læra grunninn á einfaldan hátt fá innblástur til að breyta til. 

Hópanámskeiðin eru miðuð við tvær til fjórar konur í senn. þetta er tilvalið fyrir litla hópa, vinkonur, saumaklúbbinn, samstarfsfélagana, mæðgur, frænkur eða hvaða hóp sem er.  Fyrir einstaklingskennslu þá erum við með einkanámskeið í förðun sem Kristín Stefáns kennir og fyrir stærri hópa erum við með dekurkvöld. Hægt er að lesa hér um önnur námskeið

HVAÐ LÆRIÐ ÞIР

Á þessum vinsælu námskeiðum lærið þið að farða ykkur á einfaldan hátt, dag- og kvöldförðun undir handleiðslu förðunarmeistara og hver og ein fær persónulegar ráðleggingar. Allar farða sig á staðnum og læra þannig grunninn sem nauðsynlegt er að kunna ásamt umhirðu húðar.

Allar vörur innifaldar á námskeiðinu og 10% afslátt af allri vörusölu.

DAGSETNINGAR

Tímasetning alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:00-20:00, getur farið yfir uppsettan tíma.. Hægt að senda okkur tölvupóst ef óskað er eftir sérstakri dagsetningu.

Einnig bjóðum við upp á helgarnámskeið fyrir þá sem vilja, þá eftir kl.3 á laugardögum og einnig á sunnudögum eftir óskum.


Endilega sendið skilaboð á Facebook, í tölvupósti (sala@noname.is) eða hafið samband í síma 533-2223 til að staðfesta tímann :) 

Verð 7.500 kr á manneskju

HVERJIR KENNA: 

Við erum með nokkra förðunarmeistara sem eru með margra ára reynslu í bransanum sem kenna námskeiðin. Kristín Stefáns, Svanhvít Valgeirs og Kristín Friðriksdóttir. Ekki er hægt að lofa ákveðnum kennara á námskeiðið. 

BÓKANIR 

Senda fyrirspurn á facebook eða bóka á netfang  sala@noname.is eða hringja í síma 533-2223

- Ertu búin að bóka í gegnum email/facebook eða síma og þarft að greiða? Þá veluru fjöldann hér fyrir neðan hversu margir mæta og greiðir þá upphæð. Þetta kostar 7.500 kr per manneskju

 

Add some text content to a popup modal

Gerast áskrifandi að fréttabréfinu okkar

Þú færð sendar upplýsingar um ný tilboð og fréttir hjá NN Studio